FIT&RUN EXPO 2027 Í LAUGARDALSHÖLL

19. ágú 2027 14:00-20:00
20. ágú 2027 14:00-20:00

FIT&RUN 2027

FIT&RUN EXPO er lifandi og fjölbreytt sýning fyrir alla fjölskylduna þar sem hlaup, hreyfing, heilsa og vellíðan eru í forgrunni. Sýningin er haldin samhliða skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka og þar geta hlauparar undirbúið sig fyrir stóra daginn, sótt hlaupagögnin sín og kynnt sér allt það nýjasta sem tengist hlaupum og heilbrigðum lífsstíl.

Á sýningunni má finna fjölbreytt úrval af hlaupaskóm, íþróttafatnaði, heilsufæði, næringu, tækni, búnaði og öðrum vörum og þjónustu sem styðja við hreyfingu og vellíðan.

FIT&RUN er jafnframt frábært tækifæri til að kynna sér nýjungar, hitta fyrirtæki og sérfræðinga og gera góð kaup. Sýnendur hafa jafnan boðið upp á sérstök sýningartilboð og afslætti meðan á viðburðinum stendur.



FIT & RUN er haldið í samstarfi við:



Sýningin fer fram í Laugardalshöll í tvo daga:
Fimmtudag kl. 14:00–20:00
Föstudag kl. 14:00–20:00


Það skapast alltaf einstök stemning í Laugardalshöll þegar þúsundir hlaupara koma að sækja hlaupagögnin sín og gestir streyma um sýningarsvæðið.


Hvort sem þú ert að undirbúa þig fyrir Reykjavíkurmaraþonið, hefur áhuga á heilsu og hreyfingu eða vilt einfaldlega upplifa skemmtilega sýningu með fjölskyldunni, þá er FIT&RUN EXPO vel þess virði að heimsækja.

Allt neðangreint og meira á FIT & RUN

Fatnaður og búnaður

Íþróttaföt, hlaupaskór, æfingabúnaður, snjalltæki og heyrnatól

Æfingar og þjálfun

Hlaupaklúbbar, æfinga- og þjálfunarstöðvar, einkaþjálfarar og æfingaforrit

Ferðir og útivist

Hlaupaferðir innanlands og erlendis, gönguferðir, hvatferðir

Heilsa og meðferðir

Hlaupaklúbbar, æfinga- og þjálfunarstöðvar, einkaþjálfarar og æfingaforrit

Þjónusta og tækni

Hugbúnaður fyrir íþróttafólk, tryggingafélög, heilsutímarit, æfingaforrit

Næring og vörur

Hollusta, orka og bragð – allt sem þú þarft fyrir líkama og sál

Niðurstöður viðhorfskönnunar meðal gesta FIT&RUN

Gerðar hafa verið kannanir meðal gesta sýningarinnar þar sem þeir eru spurðir um hvað skiptir þá mestu máli, með það að markmiði að koma enn betur til móts við væntingar þeirra.

Niðurstöður síðustu könnunar voru afar jákvæðar og sýna svart á hvítu að sýningin nær að skapa bæði ánægju og virði fyrir gesti og þátttakendur. Sérstaklega vakti athygli hversu hátt hlutfall gesta nýtti tækifærið til að versla vörur eða þjónustu á staðnum:

  • 61,2% gesta keyptu vörur og/eða þjónustu á sýningunni

  • 87,8% lýstu því yfir að þeir væru „Mjög ánægðir“ eða „Ánægðir“ með sýninguna

  • 88,7% töldu vöru- og þjónustuframboðið „Mjög gott“ eða „Gott

Þessar niðurstöður eru sterkar vísbendingar um að sýningin sé ekki aðeins að uppfylla væntingar, heldur einnig að skapa lifandi vettvang þar sem gestir fá jákvæða upplifun, fjölbreytt val og raunverulegt virði fyrir sinn tíma og fjármuni.

 

Sjáðu stemninguna á FIT&RUN 2026