Um skipuleggjendur sýningarinnar

FIT&RUN EXPO er árleg heilsu-, hreyfingar- og lífsstílssýning í Laugardalshöll, haldin samhliða skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþonsins.

Markmið FIT&RUN er að skapa lifandi og fjölbreyttan vettvang þar sem fólk getur kynnt sér nýjustu vörur, þjónustu og strauma sem tengjast heilsu, hreyfingu og vellíðan. Gestir fá tækifæri til að hitta fyrirtæki og sérfræðinga, sækja sér innblástur, fræðslu og hvatningu – og uppgötva nýjar leiðir til að bæta eigin heilsu og lífsgæði.

Á hverju ári taka um 70 sýnendur þátt og yfir 20.000 gestir heimsækja sýninguna. Kannanir sýna jafnframt að 61% gesta kaupa vöru eða þjónustu á viðburðinum, sem gerir FIT&RUN að öflugum vettvangi fyrir vörukynningar, sölu, vörumerkjauppbyggingu og tengslamyndun.

Að sýningunni stendur Vista Expo, sem býr yfir víðtækri reynslu af skipulagningu og framkvæmd stórra sýninga og viðburða. Markmiðið er að þróa FIT&RUN áfram ár frá ári og skapa metnaðarfullan viðburð sem skilar bæði gestum og sýnendum raunverulegu virði.

 

Hefur þú áhuga á að vera meðal sýnenda á næstu FIT&RUN sýningu?

Hafðu samband við okkur á omar@vistaexpo.is og fáðu nánari upplýsingar um þátttöku.

Sýnishorn af viðburðum sem Vista Expo hefur haldið

Vista Expo skipuleggur fjölbreyttar ráðstefnur og sýningar þar sem einstaklingar og fyrirtæki koma saman til að deila nýjungum, miðla fróðleik og veita innblástur. Hér má sjá nokkra viðburði í okkar umsjón – hver og einn með sína einstöku upplifun.

FIT&RUN EXPO 2026

Vöru - og þjónustusýning, haldin í Laugardalshöll

GOLF EXPO 2026

Vöru - og þjónustusýning, haldin í Laugardalshöll

FIT&RUN EXPO 2025

Vöru - og þjónustusýning, haldin í Laugardalshöll

Lifandi heimili 2019

Vöru- og þjónustusýning, haldin í Laugardalshöll

FIT & RUN 2019
Vöru - og þjónustusýning, h
aldin í Laugardalshöll

FASTEIGNARÁÐSTEFNAN 2017

Ráðstefna, haldin í Hörpu

FIT & RUN 2017
Vöru - og þjónustusýning, h
aldin í Laugardalshöll

Amazing home show 2017
Vöru- og þjónustusýning, haldin í Laugardalshöll

HEILSA OG LÍFSSTÍLL 2015
Vöru- og þjónustusýningin, h
aldin í Hörpu

FASTEIGNARÁÐSTEFNAN 2016

Ráðstefnan, Haldin í Hörpu

FIT & RUN 2016
Vöru - og þjónustusýning, h
aldin í Laugardalshöll

MY BABY 2016
Vöru- og þjónustusýning, h
aldin í Hörpu

Heilsa og lífstíll 2015
Vöru - og þjónustusýning, h
aldin í Hörpu