Hreyfiafl sýningarinnar
FIT&RUN EXPO er árlegur viðburður í Laugardalshöll, haldinn samhliða skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþonsins í samstarfi við Íslandsbanka.
Við sameinum orku, innblástur og nýjustu strauma í heilsu og vellíðan – vettvang þar sem gestir kynnast nýjum vörum, fá fræðslu og hvatningu til að taka næsta skref í eigin vellíðunarferðalagi.
Á hverju ári taka um 70 sýnendur þátt og yfir 20.000 gestir mæta. Kannanir sýna að 61% gesta kaupa eitthvað á viðburðinum, sem gerir hann að verðmætum vettvangi fyrir sölu, kynningar og tengslamyndun.
Vista Expo, með margra ára reynslu af skipulagningu stórviðburða, tryggir að FIT&RUN verði einstök upplifun ár eftir ár.
Sýningastjóri
Ómar Már Jónsson, framkvæmdastjóri
Hafðu samband!
Netfang: omar@vistaexpo.is
Vista Expo ehf. Kt.651102-3080
Heimasíða: www.vistaexpo.is
Sýnishorn af viðburðum sem Vista Expo hefur haldið
Vista Expo stendur að fjölbreyttum ráðstefnum og sýningum þar sem fólk og fyrirtæki koma saman til að deila nýjungum, fræðslu og innblæstri. Hér eru nokkrir viðburðir sem við höldum utan um - hver með sína einstöku upplifun.