News
Sýnendur ánægðir með FIT&RUN 2026
Niðurstöður viðhorfskönnunar meðal sýnenda á FIT&RUN 2026 sýna mikla ánægju með sýninguna, gestafjölda og þann markhóp sem sótti viðburðinn.
Könnunin var framkvæmd að sýningu lokinni með það að markmiði að meta upplifun sýnenda og nýta niðurstöðurnar við undirbúning FIT&RUN 2027.
Helstu niðurstöður voru:
- 82,6% sýnenda töldu sig hafa náð markmiðum sínum mjög vel eða frekar vel með þátttökunni.
- 87% sögðu gesti sýningarinnar passa mjög vel eða frekar vel við markhóp fyrirtækisins.
- 73,9% telja mjög eða frekar líklegt að fyrirtækið taki aftur þátt í FIT&RUN árið 2027.
- 82,6% nefndu styrkingu vörumerkis sem einn helsta ávinning þátttökunnar og 73,9% tengslamyndun.
- 47,8% nefndu aukna kynningu á vörum og þjónustu sem mikilvægan ávinning.
OFSI HJÓL með frumlegasta bás FIT&RUN 2026
OFSI HJÓL hlaut viðurkenningu fyrir frumlegasta bás sýningarinnar á FIT&RUN 2026, sem fram fór í Laugardalshöll dagana 20.–21. ágúst samhliða skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka.
Bás OFSI HJÓL vakti athygli fyrir skapandi uppsetningu, frumlega framsetningu og skýra sérstöðu. Með skemmtilegri nálgun og vel útfærðri heildarmynd tókst fyrirtækinu að skapa bás sem stóð upp úr og greip auga gesta sýningarinnar.
Fagráð FIT&RUN valdi því OFSI HJÓL sem frumlegasta bás FIT&RUN 2026.
Við óskum OFSI HJÓL innilega til hamingju með viðurkenninguna og þökkum fyrir glæsilega þátttöku og þann metnað sem lagður var í sýninguna.
Til hamingju OFSI HJÓL!
WODBÚÐ / AIM’N með flottasta bás FIT&RUN 2026
WODBÚÐ / AIM’N hlaut viðurkenningu fyrir flottasta bás sýningarinnar á FIT&RUN 2026, sem fram fór í Laugardalshöll dagana 20.–21. ágúst samhliða skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka.
Mikill metnaður var lagður í útlit og framsetningu bássins og vakti hann verðskuldaða athygli gesta sýningarinnar. Heildaryfirbragðið, vöruuppsetningin og sterk ásýnd skiluðu sér í glæsilegum bás sem stóð upp úr að mati fagráðs sýningarinnar.
Fagráð FIT&RUN valdi því WODBÚÐ / AIM’N sem flottasta bás FIT&RUN 2026.
Við óskum WODBÚÐ / AIM’N innilega til hamingju með viðurkenninguna og þökkum þeim fyrir frábæra þátttöku og þann metnað sem þau lögðu í sýninguna.
Til hamingju WODBÚÐ / AIM’N!
ICEPHARMA / KALON með skemmtilegasta bás FIT&RUN 2026
CEPHARMA / KALON hlaut viðurkenningu fyrir skemmtilegasta bás sýningarinnar á FIT&RUN 2026, sem fram fór í Laugardalshöll dagana 20.–21. ágúst samhliða skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka.
Básinn vakti mikla athygli gesta og tókst ICEPHARMA / KALON að skapa skemmtilega og lifandi upplifun þar sem framsetning, stemming og samskipti við gesti spiluðu vel saman.
Fagráð FIT&RUN valdi því ICEPHARMA / KALON sem skemmtilegasta bás FIT&RUN 2026.
Við óskum ICEPHARMA / KALON innilega til hamingju með viðurkenninguna og þökkum þeim fyrir frábæra þátttöku og fyrir að leggja sitt af mörkum til að gera sýninguna lifandi og skemmtilega fyrir gesti.
Til hamingju ICEPHARMA / KALON!
Strong Interest in FIT&RUN 2026
Preparation for FIT&RUN 2026 is well underway, and exhibitor registration has far exceeded expectations. Around 85% of the exhibition space has already been sold or reserved, which means only a limited number of stands are still available.
Everything points to the event becoming even larger in scope than the show held last August. FIT&RUN 2026 will take place in Laugardalshöll on 20–21 August, and around 22–23 thousand visitors are expected over the two days.
Companies that take part gain a unique opportunity to meet their target audience face to face at one of the largest and most popular running festivals held in Iceland.
If you believe your company has something to offer the visitors of the exhibition, we encourage you to get in touch and explore the possibilities. Drop a line to omar@vistaexpo.is to start the conversation about taking part in this unique event.
Secure Your Spot at FIT&RUN 2026 – Registration Opens September 15
Largest FIT&RUN to Date Sets New Participation Record
Most Creative Booth Award – Heilsa
Nike Awarded Best Exhibition Booth